— Leiðbeiningar / dk

    Hvernig á að byrja — dk notendur

    01Búa til notendaaðgang í Bellu

    1. Farðu á app.bellabooks.ai
    2. Skráðu netfang
    3. Veldu Búa til reikning
    4. Við höfum samband við þig innan 24ra tíma til að fá frekari upplýsingar um fyrirtækið þitt

    02Tengja dk Bókhald við Bellu

    Það eru tvær leiðir til að tengja dk, eftir því hvort fyrirtækið er með dk Plus eða ekki.

    A) Fyrirtæki með dk Plus

    Ef fyrirtækið er þegar með dk Plus getið þið sjálf búið til Token.

    1. Farðu í dk Plus og opnaðu stillingar fyrir tengingar / API
    2. Búðu til Token
    3. Afritaðu Token-ið
    4. Farðu inn í Bellu → Tengingar → dk Bókhald
    5. Settu Token-ið inn og vistaðu

    Tengingin verður virk strax.

    B) Fyrirtæki ekki með dk Plus

    Ef fyrirtækið er ekki með dk Plus þarf að senda póst á dk til að stofna dk Plus og Token.

    Sendið póst á: hjalp@dk.is

    Texti sem má nota í póstinum:

    Góðan daginn,
    
    Getið þið stofnað fyrir mig dk Plus fyrir xxx ehf., kt. xxxx
    og á sama tíma stofnað Token fyrir okkur og sent á mig.
    
    Með von um skjót svör.

    Þegar Token berst:

    1. Skráðu þig inn í Bellu
    2. Farðu í Tengingar → dk Bókhald
    3. Settu Token-ið inn
    4. Vistaðu

    — Næsta skref

    Bella tekur við

    Þegar tenging er komin getur Bella byrjað að lesa gögn úr dk og aðstoða við sjálfvirka bókun reikninga.

    Bella

    Bella

    Gervigreindarbókari

    Bella

    Hæ! Ég er Bella

    Gervigreindarbókari Bella Books. Spyrðu mig um hvað sem er tengt bókhaldi og Bella Books á íslensku, ensku eða þýsku.