Um okkur

    Íslensk hugbúnaðarlausn — fyrir íslensk fyrirtæki

    Að baki Bellu Books standa aðilar með djúpa reynslu af hugbúnaðargerð, fjármálum og bókhaldi í íslensku viðskiptaumhverfi.

    Teymið

    Fólkið á bak við Bellu

    Erla Símonardóttir
    Stofnandi
    Erla Símonardóttir
    CEO

    Erla er stofnandi Bella Books og leiðir stefnumótun og daglegan rekstur. Hún hefur víðtæka reynslu m.a. frá Deloitte og Búseta af fjármálum og fjármálastjórn sem og reynslu af rekstri og nýsköpun á íslenskum markaði. Erla hefur beina þekkingu á því hversu mikil handavinna er enn í bókhaldi og vinnur að því að einfalda það með snjallri íslenskri tæknilausn.

    Jói Sigurðsson
    Stofnandi
    Jói Sigurðsson
    CTO

    Jói er meðstofnandi Bella Books og ber ábyrgð á tækniþróun. Hann hefur yfir 30 ára reynslu af hugbúnaðargerð, þar af tíu ár sem leiðtogi hjá Google, og víðtæka reynslu af þróun og uppbyggingu B2B SaaS lausna, þar á meðal í samræmi við ISO 27001, SOC 2 Type II, GDPR og HIPAA öryggis- og persónuverndarstaðla.

    Hlutverk okkar

    Bella einfaldar bókhald með sjálfvirkni

    Við viljum að bókarar, fjármálastjórar og eigendur fyrirtækja þurfi ekki að eyða löngum tíma í handvirkan innslátt og endurtekningar. Bella Books er byggð með það í huga að aðstoða bókara við endurtekningarnar og búa til tækifæri fyrir starfsmanninn til að nýta þekkinguna til að greina og bæta reksturinn.