Bella í fréttum
Hér má sjá fréttir, viðtöl og samfélagsmiðlapósta sem fjalla um Bella Books og allt það mikilvæga sem gerist hjá okkur.

Viðskiptablaðið segir frá opnum viðburði Reykjavik Fintech, Fjármálakastsins og Bella Books 1. október um sjálfvirknivæðingu í bókhaldi. Erla Símonardóttir fór yfir viðbrögð bókara við Bellu og Jói Sigurðsson sýndi hvernig kerfið virkar og hvernig öryggi og rekjanleiki eru tryggð.
Lesa meira
Erla Símonardóttir og Jói Sigurðsson kynntu Bella Books á Accounting, Controlling & Finance Summit í Düsseldorf, með bás á sýningarsvæði sprotafyrirtækja og kynningu á sviði. Ferðin skilaði góðum tengslum við bókhaldsstofur, mögulega samstarfsaðila og fyrirtæki í Þýskalandi.
Lesa meiraBella er nú á Lausnatorgi dk, þar sem notendur dk kynna sér lausnir sem tengjast og styðja við dk. Markmiðið er að draga úr handavinnu, einfalda yfirferð og gera reikningavinnslu skilvirkari fyrir íslensk fyrirtæki.
Lesa meira
Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Þýskalandi, bauð til móttöku í Norrænu sendiráðunum í Berlín í tengslum við E-Rechnungs-Gipfel. Jói Sigurðsson hélt þar erindið „How can Europe trust AI in Finance workflows?“ um fullveldi gagna, sjálfvirkni, mannlega stjórn og gervigreindarreglugerð ESB (AI Act). Við þökkum Auðuni Atlasyni sendiherra kærlega fyrir að taka á móti okkur.
Lesa meira
Fyrsta raunverulega skref Bella Books inn á þýska markaðinn: bás á E-Rechnungs-Gipfel í Berlín 22.–24. júní og samtöl við fólk úr heimi rafrænna reikninga, bókhalds, skattamála og tækni.
Lesa meira (á ensku)
Bella Books tók þátt í Slush 2025 — stærstu sprotaráðstefnu Evrópu — og kynnti íslensku AI-bókhaldslausnina fyrir fjárfestum og frumkvöðlum frá öllum heiminum.
Lesa meira (á ensku)
Erla Símonardóttir, meðstofnandi Bella Books, í 6:46 mínútna útvarpsviðtali á Bylgjunni um hvernig Bella sjálfvirknivæðir bókhald.
Lesa meira
Langt viðtal Rakelar Sveinsdóttur við Erlu Símonardóttur um Bella Books — hvernig íslensk gervigreind sparar bókurum heilu vinnudagana.
Lesa meira
KLAK – Icelandic Startups kynnir teymin tíu sem taka þátt í Startup SuperNova 2025, þar á meðal Bella Books með íslenska AI-bókhaldslausn.
Lesa meira (á ensku)