Allt sem þú vilt vita áður en þú byrjar
Hafðu samband ef spurningin þín er ekki hér.
Bella er fyrir fyrirtæki sem nota dk Bókhald, Microsoft Dynamics 365 Business Central, Reglu eða DATEV og bókhaldsstofur sem þjónusta mörg fyrirtæki. Hún hentar sérstaklega vel meðalstórum fyrirtækjum sem vilja spara tíma án þess að skipta um bókhaldskerfi eða missa stjórn á bókhaldinu. Bella ræður við flókna lánardrottnareikninga sem þarf að skipta upp á marga lykla og víddir, og vinna ásamt fylgiskjölum. Hún getur bókað á verk, vörur og birgðir og aðstoðar við að stofna vörur og annað skipulag í kringum slíkt bókhald.
Bella notar gervigreind til að lesa reikninga, kvittanir og færslur. Hún þekkir lánardrottna, bókhaldslykla, víddir og VSK reglur. Hún býr til sjálfvirkar bókunartillögur byggðar á sögulegum mynstrum og reglum sem þið skrifið á mannamáli, með okkar aðstoð ef þess er þörf.
Tengdu bókhaldskerfið þitt við Bellu, og Bella byrjar að lesa reikninga, læra og búa til bókunartillögur. Bókarinn yfirfer og samþykkir tillögurnar, heldur fullri stjórn en sparar ógrynni af tíma.
Það er mismunandi eftir stærð fyrirtækis og fjölda færslna, en meðalfyrirtæki sem notar Bellu sér 50% eða meiri tímasparnað á innlestri lánardrottnareikninga strax fyrsta mánuðinn.
Já. Bella notar m.a. gervigreind til að lesa reikninga úr PDF, tölvupósti, skönnuðum eða ljósmyndum af skjölum (jafnvel handskrifuðum). Hún les allar lykilupplýsingar svo sem upphæð, dagsetningu, lánardrottinn og VSK. Bella býr sjálfkrafa til bókunartillögu sem þú staðfestir áður en hún bókast sjálfvirkt inn í dk.
Já. Bella lærir sjálfkrafa af fyrri færslum, og lærir af þeim leiðréttingum sem þú gerir á tillögum hennar. Á nokkrum dögum skilur hún þitt verklag — á hvaða lykla hvaða kostnaður bókast, hvernig þú flokkar óljósar færslur og hvaða reglur eru einstakar fyrir þitt fyrirtæki.
Bella les pappírskvittanir (ljósmyndaðar eða skannaðar) ásamt rafrænum reikningum. Þú getur líka hlaðið inn heilum bunkum í einu og Bella vinnur úr þeim sjálfvirkt. Eins og stendur vinnur Bella ekki með kreditkortayfirlit.
Já. Hvert fyrirtæki fær sitt eigið netfang hjá Bellu. Áframsendu reikninga þangað og Bella les þá sjálfkrafa, flokkar þá og setur þá í biðröð fyrir samþykki. Eins er hægt að taka mynd af kvittun í símanum og senda hana til Bellu með Bellu-appinu.
Bella leggur alltaf til, síðan staðfestir þú. Ef tillaga er röng leiðréttir þú hana og Bella lærir af því. Þegar Bella er ekki viss merkir hún færsluna „til skoðunar“ og bíður eftir þér. Þú hefur alltaf síðasta orðið.
Já, það er einmitt það sem Bella gerir. Bella tengist beint við núverandi bókhaldskerfi þitt og sjálfvirknivæðir endurtekin verkefni án þess að þú þurfir að skipta um kerfi.
Bella vinnur með dk Bókhaldi, Microsoft Dynamics 365 Business Central og Reglu, auk Unimaze fyrir rafræna reikninga. Sé kerfið þitt ekki á listanum bókarðu kynningu og við segjum þér hvað þarf til að tengja það. Þú þarft aldrei að skipta um kerfi til að fá sjálfvirkni.
Í gegnum örugga API-tengingu. Þú veitir Bellu aðgang með nokkrum smellum og hún byrjar samstundis að lesa færslur og læra verklagið þitt. Engin uppsetning í tölvunni þinni, engin handvirkur flutningur á gögnum.
Já. Bella vinnur í dag með dk Bókhaldi, Microsoft Dynamics 365 Business Central og Reglu, auk Unimaze fyrir rafræna reikninga. Aldur kerfisins er ekki hindrunin; það sem skiptir máli er að við náum sambandi við það, og við bætum reglulega við nýjum tengingum.
Ekkert mál. Bella er sjálfstætt kerfi sem tengist bókhaldskerfinu þínu. Bókhaldskerfið þitt þarf ekki að „vita af“ gervigreind. Bella vinnur úr lánadrottnareikningunum þínum og skilar tilbúnum bókunartillögum til baka.
Nei. Uppsetning Bellu krefst hvorki forritunar né innleiðingarverkefnis. Þú tengir bókhaldskerfið með nokkrum smellum og byrjar, með okkar aðstoð. Það er ekki skuldbinding að byrja að nota Bellu, þú borgar mánuð fyrir mánuð og það er enginn innleiðingarkostnaður.
Tengingin sjálf tekur innan við fimm mínútur. Bella byrjar að læra verklagið þitt strax og á nokkrum dögum er hún farin að búa til bókunartillögur sjálfstætt. Flest fyrirtæki sjá mælanlegan tímasparnað innan fyrstu viku.
Algjörlega. Bella notar dulkóðaðar tengingar, örugga geymslu og hefur fullan rekjanleika yfir allar aðgerðir. Þú hefur alltaf stjórnina og ekkert fer inn í bókhaldskerfið án þinnar staðfestingar.
Já. Bella er byggð samkvæmt íslenskum bókhaldsreglum og tekur tillit til VSK-reglna, skattaflokka og endurskoðunarkrafna um rekjanleika. Allar aðgerðir eru rekjanlegar og samræmast því að endurskoðendur geti alltaf séð hver gerði hvað, hvenær, byggt á hvaða gögnum.
Bella er hönnuð með evrópskt regluverk í huga: gögn eru dulkóðuð í flutningi og geymslu, gögn viðskiptavina eru ekki notuð til að þjálfa gervigreindarmódel og allar bókunartillögur eru yfirfarnar af notanda. Öll gögn eru hýst og unnin innan EES. Við höldum líka utan um rekjanleika og sýnileika í kringum tillögur gervigreindarinnar. Nánari upplýsingar fást hjá privacy@bellabooks.ai.
Já. Bella hentar sérstaklega vel fyrir bókhaldsstofur og endurskoðendur sem þjónusta mörg fyrirtæki. Hvert fyrirtæki er aðgreint með eigin aðgangi, gögn eru aðskilin og þú stjórnar hverjir sjá hvað.
Ekki með Bellu. Bella kostar brot af þeim starfsmannatíma sem hún sparar. Mörg fyrirtæki vinna upp kostnað við ársáskrift strax fyrsta mánuðinn í þeim tíma sem losnar hjá sérfræðingum þeirra í að vinna mikilvægari verkefni en handavinnu.
Já. Bókaðu kynningarfund og við getum sýnt þér hvað Bella getur gert fyrir þig, og stillt upp prufutímabili. Við hjálpum þér að tengja kerfið og byrja, svo þú sjáir raunverulegan tímasparnað áður en þú tekur ákvörðun.
Hafðu samband beint við okkur og við svörum um hæl.
Hafa sambandGervigreindarbókari sem sér um handavinnuna
Bókaðu kynningu og sjáðu hvað Bella getur gert fyrir þig. Engin binding og enginn innleiðingarkostnaður. Bara meiri tími fyrir allt annað en handinnslátt.