Gervigreind sem vinnur með bókhaldskerfinu þínu
Bella les reikninga, kemur með bókunartillögur og lærir hvernig þú vinnur. Þú samþykkir með einum smelli — Bella sér um restina.
Veflausn sem talar við bókhaldskerfið þitt
Gervigreindarlausnin frá Bella Books er veflausn sem vinnur með bókhaldskerfinu þínu. Bella les reikninga og kemur með bókunartillögur.
Þegar þú hefur yfirfarið reikningana velur þú þá sem þú vilt senda yfir í bókhaldskerfið með einum smelli. Bella lærir af sögunni og hvernig þú vinnur skjölin og verður því betri með tímanum.
Þrjár leiðir til að senda Bellu reikninga
Þú velur þá leið sem hentar þér best — eða blandar saman öllum þremur.
Bella vinnur samkvæmt þínum reglum
Bella byrjar á að lesa reglur sem eru skráðar í bókhaldskerfið þitt, og bætir við ítarlegri reglum sem þú gefur henni, með orðum eða skjölum. Bella lærir líka af sögulegum færslum úr þínu bókhaldi.
Frá Unimaze, innhólfi eða skanna yfir í bókunartillögu
Hvert skref í ferlinu er hannað til að spara þér tíma og fækka villum.
Les allar tegundir reikninga
Bella les alla reikninga sem berast fyrirtækinu og passar upp á að tvítaka ekki reikninga sem þegar hafa borist.
Sameinar fylgiskjöl
Hún sameinar fylgiskjöl sem tilheyra reikningi og nýtir þau við greininguna. Ef fylgiskjal vantar getur hún beðið með að afgreiða reikninginn þangað til fylgiskjalið hefur borist. Þetta gerist sjálfkrafa, áður en þú sest niður með fyrsta kaffibolla dagsins.
Les allar línur og leggur til bókun
Bella les allar línur reikningsins og kemur með bókunartillögu. Hver tillaga fær öryggiseinkunn þar sem hún metur hversu viss hún er með tillöguna, útfrá tékklista. Því meiri upplýsingar sem Bella fær frá bókaranum, því betri verður hun með tímanum.
Sundurliðun á flóknum reikningum
Bella getur sundurliðað hverja línu fyrir sig og sett up flóknar bókunartillögur, til dæmis þegar reikningur inniheldur upplýsingar um marga einstaklinga, verkefni eða deildir eða kostnað með mismunandi VSK flokkun eða nýtingu, þá skiptir hún upp á réttan hátt.
Einn smellur og Bella bókar
Þegar þú hefur yfirfarið reikningana velur þú þá sem eru tilbúnir og sendir þá yfir í bókhaldskerfið með einum smelli.
Bella býr til lánardrottnareikning í bókhaldskerfinu þínu samkvæmt þeirri tillögu sem var samþykkt, og lærir af leiðréttingum þínum svo næstu tillögur verði enn nákvæmari.
Gervigreindarbókari sem sér um handavinnuna
Bókaðu kynningu og sjáðu hvað Bella getur gert fyrir þig. Engin binding og enginn innleiðingarkostnaður. Bara meiri tími fyrir allt annað en handinnslátt.